Bréf þetta sendist öllum útgerðaraðilum á Suðurnesjum og til annara er málið varðar.
Smellið á fyrirsögn til að lesa nánar.
Innheimta félags og sjóðagjalda 2025
- Málefni: Innheimta félags- og sjóðagjalda 2025.
- Á aðalfundi VÍSIS, þann 29.12.2024 var ákveðið að félags- og atvinnuréttindagjald verði 2.5% af kauptryggingu og miðast við þann tíma er viðkomandi tekur kaup hjá útgerð, hvort heldur að viðkomandi er lögskráður um borð eða í frítúr á launum.
- Kauptrygging er í dag kr. 690.460- fyrir skipstjóra/yfirstýrimann og kr. 599.102- fyrir annan stýrimann. Reikningsnúmer VÍSIS er 0121-26-537. Kt. 451275-2679.
- Að gefnu tilefni skal það áréttað að í kjarasamningi S.F.S og FS og Vísis segir: „Útgerð er skylt að halda eftir af kaupi yfirmanns er hjá þeim starfar, fjárhæð sem nemur ógeiddu félags- og atvinnuréttindagjaldi“.
- Athugið / félagsgjald þ.e 2.5% af kauptryggingu.
- Endurmenntunargjald: 0,5% af kauptryggingu.
- Sjúkrasjóður: 1% af öllum launum.
- Orlofssjóður: 0,25 % af öllum launum.
- Greiðslumiðlun: 0,22 % af öllum launum.
- Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu VÍSIS í síma 421-4942 | GSM: 892-0243 | Netfang: visir@visir-fss.is.
Bestu óskir um gott samstarf
Bréf þetta sendist öllum útgerðaraðilum á Suðurnesjum og til annara er málið varðar.